28.10.2008 | 15:38
Nú græt ég og bölva ;ó(
Ég er komin í 4ða kastið á einu ári. Ég á mjög erfitt með að skrifa þessa færslu þannig að hún verður stutt. Ég er búin að vera heima í dag með hann Andra af því að hann er lasinn með mjög háan hita eða 39,5 og þannig er það búið að vera í 4 daga. Ég fór að taka til og ganga frá. Ég fann svo að ég var farin að draga fótinn og tala asnalega eða mjög hægt og þá vissi ég að ég var komin í kast. Þannig að núna ætla ég að leggjast upp í sófa og slappa af þangað til Baldur kemur heim sem verður fljótlega.
Athugasemdir
Æ ekki gott að heyra látið ykkur batnað þú getur spjallað við mig hvenar sem er skvizz
knús,knús
Erna Sif Gunnarsdóttir, 28.10.2008 kl. 17:15
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.